Restaurant Gästehaus Egilsstadir in Fljótsdalshérað

Fljótsdalshérað, IS

Restaurant Gästehaus Egilsstadir in Fljótsdalshérað - Photo 1
VELKOMIN Á Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstadir er rómað, fjölskyldurekið hótel sem hvílir á gömlum merg íslenskrar bændamenningar. Hótelið mætir ströngustu nútímakröfum um gæði, glæsileik og aðbúnað, um leið og það varðveitir uppruna sinn sem nær aftur til ársins 1903 og ljær því einstakan blæ. Gestir geta valið um vel búin og rómantísk antík-herbergi í eldri hluta hótelsins eða nútímaleg herbergi yngri byggingar. Veitingastaður hótelsins, Eldhúsið – Restaurant , hefur getið sér orðs og eru metnaður og alúð þar allsráðandi. Matargerðin er sprottin úr traustum hefðum, en hráefnin gjarnan sett í nýtt og framsækið samhengi. Hráefni er ætíð fyrsta flokks, að mestu íslenskt, gjarnan lífrænt og oft fengið úr næsta nágrenni, enda er leitast við að nýta og kynna afurðir úr héraði. Þriggja rétta kvöldverðurinn Beint frá býli er stolt Eldhússins. Glæsileg heilsulind, Baðhúsið – Spa , er á jarðhæð hótelsins, með heitri smálaug, sánu, köldum potti og hvíldarsvæði innan og utan dyra. Einkar fallegt útsýni er yfir Lagarfljót frá heilsulindinni. Lögð er áhersla á rólegt, slakandi og endurnærandi umhverfi. Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstadir stendur á bökkum hins mikla og fagra Lagarfljóts við Egilsstaði og er þannig miðsvæðis á Austurlandi. Hótelið liggur vel við samgöngum í lofti, á láði og legi og er t.d. aðeins klukkustundarlöng ferð flugleiðis milli Reykjavíkur og Egilsstaðaflugvallar, en hótelið er þar skammt frá. Það er einnig upplagt sem miðpunktur ferða um austurhluta Íslands, allt frá hálendi til strandar. Fjölbreytt afþreying er í boði á svæðinu. Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstadir er svipmikið hótel með öllum nútímaþægindum en um leið er það hlýlegt og umvefjandi. Hótelið er innan vébanda félagsins Ferðaþjónustu bænda. Starfsfólk er um 40 manns; einvalalið sem hefur vellíðan og ánægju gestanna í fyrirrúmi. Verið velkomin að njóta gestristni og góðs aðbúnaðar í fögru umhverfi við Lagarfljót.
Imprint notice / Residential property protection number
http://lakehotel.is/

Click here to go directly to the accommodation

Website
http://lakehotel.is/
Email address
hotel@gistihusid.is
Phone number
+354 471 1114
Address
Kaupvangur, 17
700 Fljótsdalshérað, IS

Straight to the accommodation – and meet other guests

On the accommodation's website you can enquire or book directly, without going through a booking portal.

Go to the accommodation's website

With socialZoom you can find travellers who are also going there or have already been there, and ask them about their experiences.

Discover socialZoom
Request nowBook directly
Price per night per person
from € 133.00
Including taxes and fees, gross € 133.00

Accommodation types